Landssambandi smábátaeigenda hefur borist bréf frá systursamtökum sínum í Noregi, Norges Kystfiskarlag (NK). Á stjórnarfundi NK fyrir stuttu var staðan á Íslandi rædd. Stjórnin sendir stuðningskveðjur til félaga sinna hérlendis og lýsir áhyggjum af ástandinu. Jafnframt lýsir stjórn NK þeim vilja sínum að rétta hjálparhönd, sé það henni á nokkurn hátt mögulegt.
Norges Kystfiskarlag hefur þegar verið sent svar frá LS þar sem þetta vinarþel er þakkað.
Aðalskrifstofa NK er í Ramberg á Lofoten. Þar er mikil náttúrufegurð og aðstæður minna um margt á Ísland.