Mikilvæg tilkynning sem varðar öryggi sjófarenda, flugmanna og ferðamanna

Eftirfarandi tilkynning er frá Landhelgisgæslunni:

Mánudagur 15. desember 2008.
Cospas-Sarsat gervihnattakerfið hættir þann 1. febrúar að vinna úr merkjum neyðarsenda á 5-1-1 og 243 MHz <http://www.lhg.is/starfsemi/stjornsyslusvid/frettir/nr/1251>

Sá þáttur sem vegur einna þyngst, þegar kemur að öryggi íslenskra sjófarenda, flugmanna og ferðamanna, er að um borð í bátum þeirra, skipum og flugförum séu neyðarsendar sem bera boð tafarlaust til Stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar og sýna þá helst GPS staðsetningu þeirra sem lenda í neyð eða vanda. Einnig er mikilvægt fyrir ferðafólk, svo sem veiðimenn sem eru oft á tíðum á svæðum sem eru utan alfaraleiða,  að hafa GPS tæki í fórum sínum, eins konar neyðarhnapp sem virkar hvar sem er í heiminum.
 
Því vill Landhelgisgæslan vekja athygli á því að þann 1. febrúar 2009 mun alþjóðlega Cospas-Sarsat gervihnattakerfið hætta að vinna úr merkjum neyðarsenda á 5-1-1 og 243 MHz og mun eftir þann tíma einungis vinna úr merkjum neyðarsenda sem eru á tíðninni 406 MHz.
 
Af þessum sökum er mjög mikilvægt fyrir sjófarendur og flugrekendur að yfirfara – og ef þörf er á, skipta út neyðarsendum, sérstaklega í öllum gúmbjörgunarbátum íslenskra skipa.  Landhelgisgæslan mælir með að nýir neyðarsendar á 406 MHz séu búnir GPS staðsetningarbúnaði. Staðsetningar með GPS eru eins og flestir vita mjög nákvæmar eða 0-1-60 metrar í radíus,  sem styttir leitartíma hvort sem er á sjó eða á landi. Biðtími er innan sex mínútna frá ræsingu nýju sendanna þar til Stjórnstöð LHG fær upplýsingar og getur brugðist við þeim. Áríðandi er að sendarnir verði settir sem allra fyrst í alla báta, ekki síst björgunarbáta.  
Cospas-Sarsat ákvað að hætta úrvinnslu merkja frá neyðarsendum á 243-5-121 MHz í samráði við Alþjóða flugmálastofnunina (ICAO) og Alþjóða siglingamálastofnunina (IMO) þar sem sárafáar sendingar á þessari tíðni hafa reynst vera raunveruleg neyðartilvik, auk þess er ónákvæmni staðsetninga veruleg.
Þessi breyting hefur að mati LHG afar jákvæð áhrif vegna fólks í neyð, en ekki síður vegna leitar- og björgunaraðagerða (SAR).
Nánar hér; http://www.lhg.is/starfsemi/stjornsyslusvid/frettir/nr/1185
 
Meðfylgandi er skýringamynd, með útskýringum um virkni á okkar svæði en grunnur er fenginn úr kynningarefni f. neyðarsenda
http://www.kannad.com/upload/contenu/fichier/90fichier1.pdf
 
Ef óskað er nánari upplýsinga vinsamlegast hafið samband við undirritaða,
 
Kveðja,
Hrafnhildur
 
Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir
Upplýsingafulltrúi/PR officer
Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard
Sími/tel +2000-545-354/1-20-545
Mobile +0668-897-354
Fax +1-20-354

,

„Mikilvægi góðrar meðhöndlunar á fiski“