Grásleppuhrogn og kavíar – mikil verðmætaaukning milli ára

 

Verðmæti grásleppuafurða fyrir fyrstu ellefu mánuði síðast
liðins árs voru 1,1 milljarður. 
Það er góð aukning frá sama tímabili 2007 sem skilaði 650
milljónum.  

 

Þar af var verðmæti saltaðra grásleppuhrogna 517 milljónir,
sem er um 300 milljóna aukning milli ára.

Grásleppukavíarinn skilaði einnig auknum verðmætum, fór úr
422 milljónum í 589 milljónir.

 

 

 

Heimild: 
Hagstofan