Í dag hélt
Grásleppunefnd LS árlegan fund sinn um horfur fyrir komandi vertíð. Að
venju voru mörg mál á dagskrá, t.d. varðandi breytingar á reglugerð um
hrognkelsaveiðar. Flestar eru þær smávægilegar.
Á fundinum
kom m.a. fram að hlutdeild Íslands í heildarveiðinni á síðasta ári var yfir
40%, sem er sú hæsta síðan 1985.
Gríðarlegar
kostnaðarhækkanir hafa orðið á öllum aðföngum. Net, tunnur og
flutningskostnaður hafa hækkað um 0-1-50%.
Eftirfarandi
samþykkt var gerð á fundinum:
„Á fundi Grásleppunefndar Landssambands smábátaeigenda í dag 11. febrúar var rætt um verð
og markaðshorfur á komandi vertíð.
Nefndin
er sammála um að þrátt fyrir erfiða stöðu á mörkuðum sjávarafurða, séu markaðir
grásleppuhrogna í jafnvægi og birgðastaða ekki til þess að hafa áhyggjur af.
Grásleppunefnd
LS skorar á veiðimenn að hefja ekki veiðar fyrr en viðunandi verð
og trygg sala hrognanna sé í hendi“.
Grásleppunefnd LS leggur til 60 veiðidaga