Línubátar koma með 99,7% að landi – brottkast vart mælanlegt


Það vekur aðdáun að sjá hversu umgengni línubáta um
auðlindina er góð.  Skýrsla
Hafrannsóknastofnunarinnar um brottkast botnfiska á árinu 2007 segir þar allt
sem segja þarf.   

 

Við ýsuveiðar var brottkast ekki mælanlegt og við veiðar á
þorski kom í ljós að 99,7% aflans skilar sér í land.

 

Taflan hér að neðan er úr skýrslunni og sýnir mælingar á
brottkasti 2007 við þorsk- og ýsuveiðar.

töflu.png