Stjórn Eldingar vill veiðiráðgjöfina færða frá Hafrannsóknastofnuninni

 

Stjórn Eldingar fundaði í gær og samþykkti eftirfarandi:


Áskorun til stjórnvalda


Fundur í stjórn Eldingar félagi smábátaeigenda á norðanverðum
Vestfjörðum haldinn á Ísafirði 8. mars 2009 samþykkir að beina því til
stjórnvalda að færa ráðgjöf um árlegan heildarafla nytjastofna á Íslandsmiðum
frá Hafrannsóknastofnun til háskólasamfélagsins.

 

Að Hafrannsóknastofnun einbeiti sér að rannsóknum.  Að valdar verði vísindastofnanir t.d. Háskólinn á Akureyri og Háskólasetur Vestfjarða sem
vinni úr gögnum Hafrannsóknastofnunar. 
Stofnanir þessar gefi ráðgjöf og komi af stað umræðu um hvað rannsaka á. 

 

Ráðherra skal gefa út heildarafla að höfðu samráði við sjómenn.

 

Stjórn Eldingar telur að sá trúnaðarbrestur sem orðinn er milli
sjómanna og Hafrannsóknastofnunar sé farinn að skaða nauðsynlega framþróun. Við
teljum að styrkja þurfi vísindagrunninn undir veiðiráðgjöfinni og auka þekkingu
á lífríki hafsins.  Það verði best
gert með því að virkja háskólasamfélagið. Upplýst og opin umræða vísindamanna
sem skilar sér út í samfélagið er nauðsynleg.  Forsenda hennar er að trúnaður ríki á milli sjómanna og
þeirra sem gefa veiðiráðgjöf. 
Virkja verður sjómenn í þekkingarleitinni á lífríki hafsins.“ 

,