Leyfilegt var að hefja grásleppuveiðar 1. mars á svæði G sem
er sunnan Garðskaga og austur að Hvítingum. Öll svæðin opnuðu svo 10. mars.
Ráðherra ákvað að breyta útgefinni reglugerð og fjölga
sóknardögum. Samkvæmt gildandi
reglugerð eru þeir því 55, en ekki 50 eins og verið hefur undanfarin ár og LS, grásleppunefnd LS og mikill meirihluti grásleppuveiðimanna var sáttur við.
Veiði hófst 10. mars en þá lögðu alls 29 bátar og í dag eru
67 komnir með net í sjó. Að sögn
veiðimanna sem haft hefur verið samband við er veiðin í lagi úti fyrir
Norðurlandi, en mætti vera betri á svæðinu Raufarhöfn til með Vopnafjörður.