Lengingu sjávarútvegsráðherra á grásleppuvertíð harðlega mótmælt

Eins og fram kom í gær fundaði stjórn Landssambands smábátaeigenda föstudaginn 20. mars s.l.  Fjölmörg mál voru til umfjöllunar.  Eitt þeirra var sú ákvörðun sjávarútvegsráðherra að lengja grásleppuvertíðina 2009 úr 50 dögum í 55.  

Af þessu tilefni samþykkti stjórn LS eftirfarandi:

„Stjórnarfundur Landssambands smábátaeigenda, haldinn í Reykjavík 20. mars 2009 lýsir
miklum vonbrigðum með þá ákvörðun sjávarútvegsráðherra að ákveða, í algerri andstöðu
við samþykktir LS, að lengja grásleppuvertíðina 2009. 

LS hefur undanfarin ár verið í góðu samstarfi við samtök
grásleppuveiðimanna í þeim löndum þar sem hún helst veiðist, þ.e. á Nýfundnalandi, Grænlandi og Noregi, um að takmarka
veiðarnar við það sem hinn viðkvæmi grásleppukavíarmarkaður þolir.

Með ákvörðun sjávarútvegsráðherra er þessu samstarfi stefnt í hættu, algerlega að óþörfu og án viðunandi rökstuðnings.  

Leyfilegur heildarafli á fiskveiðiárinu 0-20-2009