Frá Bakkafirði og Vopnafirði berast þær fréttir að grásleppuvertíðin
hafi gætt staðina iðandi mannlífi.
Tólf bátar róa á grásleppu frá Bakkafirði og álíka margir frá
Vopnafirði og skila þeir fjölmörgum fjölskyldum góðum tekjum.
Á heimasíðu Langanesbyggðar er viðtal við Odd V. Jóhannsson grásleppusjómann.