Þriðjungs fjölgun á grásleppuveiðum

Í dag voru 129 bátar byrjaðir grásleppuveiðar sem er
þriðjungs fjölgun frá sama tíma í fyrra.

Grásleppuveiðimenn á Norðurlandi sjá nú loksins fyrir endann á veðurhamnum sem þar hefur geisað. 
Algengt er að ekki gefið á sjó í eina viku.   Veiðimenn sem rætt var við í dag segja að brælan hafi
örugglega valdið þeim miklu netatjóni auk aflamissi á góðum veiðitíma.

Rúmur helmingur þeirra sem byrjaðir eru stunda veiðar
útifyrir N-landi, svæði E, sem afmarkast frá Skagatá austur að Fonti.   Fyrir sunnan Langanes hafa 28
bátar hafið veiðar sem er 12 bátum fleira en í fyrra.