Í gær kynnti sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra Steingrímur J. Sigfússon hugmyndir sínar að nýju veiðikerfi
– strandveiðum. Ráðherrann hyggst
leggja fyrir Alþingi frumvarp strax að loknum kosningum þar sem úthlutun á byggðakvóta
á yfirstandandi fiskveiðiári verður frestað og veiðiheimildir sem til hans eru ætlaðar
nýttar í fyrirhuguðu strandveiðikerfi.
Í fréttatilkynningu ráðuneytisins
er fyrirhuguðum breytingum ætlað „að skapa svigrúm fyrir breytta stefnu til styrkingar
og örvunar atvinnustarfsemi í sjávarbyggðum.“
Í áformuðu strandveiðikerfi
verður bátum minni en 15 brt. heimilt að stunda frjálsar handfæraveiðar á tímabilinu
frá 1. maí til 31. ágúst. Í veiðikerfinu
verður aflamagn takmarkað af þeim
heildarafla sem ráðstafað verður hverju sinni. Einnig verður fjöldi handfærarúlla á hvern bát takmarkaður,
eingöngu heimilt að stunda veiðar á virkum dögum og hver dagróður verði að hámarki
12 klst.
Sjá nánar fréttatilkynningu.
Landssamband smábátaeigenda
fagnar áformum ráðherra um frelsi til handfæraveiða en að sama skapi lýsir félagið
vonbrigðum með að ætlunin sé að leggja byggðakvóta af.
Samþykktir aðalfundar LS um þessi
málefni eru:
„Að gefa handfæraveiðar frjálsar“
„Stjórnvöld standi vörð um
byggðakvóta“
,