Verð á þorski og ýsu á fiskmörkuðum í apríl einkennast af miklum
sveiflum. Munur á hæsta og lægsta
verði á ýsu var 222 kr og í þorski 155 krónur.
Það vekur athygli að meðalverð á ýsu er 18% hærra en þorski
þegar um óslægðan fisk er að ræða.
Sú ánægjulega þróun á við báðar tegundirnar að verð er að
hækka milli mánaða. Það hreinlega
spýtist upp í ýsunni eða um 50%, en verð á óslægðum þorski er 11% hærra í apríl
en mars.
Sjá nánar verðin í apríl
,