Strandveiðifrumvarpið afgreitt úr nefnd

Fyrr í dag lauk sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis
umfjöllun um strandveiðifrumvarpið. 
Í áliti meirihluta nefndarinnar eru lagðar til fjórar breytingar:

1.           
ráðherra verði heimilað að setja reglugerð um frekari skiptingu landsvæða og
löndunarstaða.

2.           
vikulegir banndagar verði föstudagur og laugardagur.

3.           
óheimilt verði að hafa fleiri en 4 handfærarúllur um borð í hverri veiðiferð.   Frumvarpið gerði ráð fyrir 2 rúllum á mann og að hámarki fjórar.

4.            
hlutfall ufsaafla af þorskafla í hverri veiðiferð verði 30% að hámarki í stað
15%.

 

Næsti þingfundur hefur verið boðaður kl 15:00 nk. mánudag.   Búast má við að frumvarpið verði
þá á dagskrá til 2. umræðu.

 

Sjá nánar:

Álit meirihluta sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar

Breytingartillögur