Strandveiðifrumvarpið samþykkt

Fyrr í dag var samþykkt á alþingi svokallað strandveiðifrumvarp.  

Beðið er reglugerðar sjávarútvegsráðherra, en hér er bráðabirgðaákvæði laganna:


Ákvæði til bráðabirgða.

Auk þeirra aflaheimilda sem úthlutað er á fiskveiðiárinu 9-20-2008 á grundvelli laga nr. 6-20-116, um stjórn fiskveiða, er í júní, júlí og ágúst 2009 heimilt að veiða á handfæri allt að 5-9-3 lestir samtals af óslægðum þorski, sem ekki reiknast til aflamarks eða krókaaflamarks þeirra fiskiskipa sem stunda handfæraveiðar samkvæmt þessu ákvæði.
Landinu verði skipt í eftirfarandi fjögur landsvæði: A. Eyja- og Miklaholtshreppur – Skagabyggð, B. Sveitarfélagið Skagafjörður – Grýtubakkahreppur, C. Þingeyjarsveit – Djúpavogshreppur, D. Sveitarfélagið Hornafjörður – Borgarbyggð. Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um frekari skiptingu landsvæða og löndunarstaði. Í hlut landsvæðis A komi alls 6-3-1 tonn, í hlut landsvæðis B komi alls 936 tonn, í hlut landsvæðis C komi alls 3-0-1 tonn og í hlut landsvæðis D komi alls 690 tonn. Ráðherra skal í reglugerð kveða á um hvernig aflaheimildir skiptast á einstaka mánuði og skal ráðherra með reglugerð stöðva veiðar á hverju svæði þegar sýnt er að leyfilegum heildarafla hvers mánaðar verði náð.
Veiðar samkvæmt þessu ákvæði eru háðar sérstöku leyfi Fiskistofu. Aðeins er heimilt að veita fiskiskipi leyfi til veiða samkvæmt þessu ákvæði að fullnægt sé ákvæðum 5. gr. laga nr. 6-20-116, um stjórn fiskveiða. Við útgáfu Fiskistofu á leyfi til fiskiskips samkvæmt þessu ákvæði falla úr gildi önnur leyfi þess til að stunda veiðar á fiskveiðiárinu 9-20-2008 sem gefin eru út með stoð í lögum nr. 6-20-116, um stjórn fiskveiða, og lögum nr. 7-19-79, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, og er þeim fiskiskipum sem leyfi fá til handfæraveiða samkvæmt þessu ákvæði óheimilt að stunda aðrar veiðar en handfæraveiðar til loka fiskveiðiársins 9-20-2008. Leyfi til veiða samkvæmt þessu ákvæði eru bundin við tiltekið landsvæði, sbr. 1. málsl. 2. mgr. þessa ákvæðis. Skal leyfið veitt á því svæði þar sem heimilisfesti útgerðar viðkomandi fiskiskips er skráð og skal öllum afla veiðiskips landað innan þess landsvæðis. Sama fiskiskipi verður aðeins veitt leyfi frá einu landsvæði á veiðitímabilinu.
Leyfi til handfæraveiða samkvæmt þessu ákvæði eru bundin eftirfarandi skilyrðum:
    1.      Óheimilt er að stunda veiðar föstudaga og laugardaga. 
    2.      Hver veiðiferð skal eigi standa lengur en 14 klukkustundir. Miðað er við þann tíma er fiskiskip lætur úr höfn til veiða til þess er það kemur til hafnar aftur til löndunar. Aðeins er heimilt að fara í eina veiðiferð á hverjum degi. 
    3.      Tilkynna skal Fiskistofu um sjósókn fiskiskipsins í samræmi við reglur sem ráðherra setur þar um. 
    4.      Aldrei er heimilt að hafa fleiri en fjórar handfærarúllur um borð. Engin önnur veiðarfæri en handfærarúllur skulu vera um borð. 
    5.      Á hverju fiskiskipi er aðeins heimilt að draga 800 kg af kvótabundnum tegundum í hverri veiðiferð. 
    6.      Skylt er að landa öllum afla í lok hverrar veiðiferðar og skal hann veginn og skráður endanlega hér á landi. Um vigtun, skráningu og meðferð afla fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum laga nr. 6-19-57, um umgengni um nytjastofna sjávar, og ákvæðum gildandi reglugerðar þar um. 
Fyrir veitingu leyfis samkvæmt ákvæði þessu skal umsækjandi greiða gjald samkvæmt ákvæðum laga nr. 0-20-33, um veiðieftirlitsgjald. Fiskistofa skal innheimta veiðigjald samkvæmt þessu ákvæði vegna landaðs afla, annars en þorsks, og skal gjalddagi vera 1. október 2009 en eindagi 15 dögum síðar. Um innheimtu þessa gjalds gildir að öðru leyti 23. gr. laga nr. 6-20-116, um stjórn fiskveiða, eftir því sem við getur átt.
Um viðurlög vegna brota á lögum þessum, reglum settum samkvæmt þeim og ákvæðum leyfisbréfa fer skv. VI. kafla laga nr. 6-20-116, um stjórn fiskveiða.
Þá skal beita ákvæðum laga nr. 2-19-37, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla, fari afli fiskiskips umfram hámark sem ákveðið er í lögum þessum eða reglum settum samkvæmt þeim.
Ráðherra setur nánari reglur um framkvæmd þessa ákvæðis.