Strandveiðar – mikill atgangur á Fiskistofu


 

Frá því reglugerð
um strandveiðar var gefin út hefur umsóknum rignt inn til

Fiskistofu.
 Stofan metur umsóknir og gefur út greiðsluseðil þegar ljóst er

að þær uppfylla
þau skilyrði sem þarf til að fá strandveiðileyfi.

Leyfisgjald er kr.
0-5-17-.

 

Greiðsluseðill er
sendur umsækjenda í pósti eða hann birtist í heimabanka.

Þegar greitt hefur
verið sendir Fiskistofa veiðileyfi til viðkomandi, í

pósti, en ef óskað
er eftir getur Fiskistofa sent leyfið í faxi til

bráðabirgða.

 

Rétt er að ítreka
að óheimilt er að hefja strandveiðar fyrr en veiðileyfi

er komið um borð í
bátinn.

 

 

 

Þeim sem eru með
veiðileyfi í atvinnuskyni er bent á að það leyfi leggst í

dvala til 1.
september um leið og greiðsluseðill er gefinn út.  Veiðileyfi

í atvinnuskyni –
með krókaaflamarki eða aflamarki kviknar svo upp 1.

september nk.
 Færsla veiðiheimilda milli ára verður með sama hætti og

verið hefur og
tilfærsla króka- og aflamarks er hægt að framkvæma til 15.

september.

 

 

 

Í samtölum við
starfsfólk Fiskistofu hefur  komið fram að mikill atgangur

hefur verið í
kringum umsóknirnar.  Margir hafa kosið að koma með umsóknir

sínar til
stofunnar, aðrir nota faxið eða póstinn.   Allt hefur þó gengið

vel og ljóst að
fyrstu strandveiðileyfin verða gefin út í dag.  Þeir sem

þau fá geta hafið veiðar á nk. sunnudag, 28.
júní.