Þorskaflinn verði 200 þús. tonn


Stjórn Landssambands smábátaeigenda hefur yfirfarið
ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar um heildarafla á næsta fiskveiðiári. 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Jóni
Bjarnasyni hafa nú verið kynntar tillögur LS.   Þar hvetur
félagið ráðherra að heimila 200 þús. tonna þorskveiði.  LS mælir með minni ýsuafla en óbreyttum
veiðiheimildum í steinbít, ufsa, löngu og keilu.   Auk þessa mælir LS með að aflatakmarkanir á skötusel
verði afnumdar.

Tillögur LS gera því ráð fyrir að þorskafli
verði aukinn um fjórðung, en ýsan minnkuð um 14%.

 

Í bréfi sem LS afhenti sjávarútvegsráðherra
segir m.a.:

„Þorskur – stjórn LS bendir á að
tillaga Hafrannsóknastofnunarinnar á yfirstandandi fiskveiðiári var 124 þúsund
tonn.  Leyfður heildarafli var hins
vegar 30% meiri – 160 þús. tonn.  Í
ljósi þess vekur það athygli að stofnunin skuli gera tillögu um að hámarksafli
verði nú aukinn um rúman fimmtung. 
Stjórn LS telur að nú eins og undanfarin ár sé Hafrannsóknastofnunin að
vanmeta stærð þorskstofnsins.  Ágæt
þorskveiði mörg undanfarin ár rennir stoðum undir það. Þegar tekið er mið af línuveiðum hafa þær gengið afar vel um langt
árabil.  Þess eru mýmörg dæmi að
veiði á hvert bjóð sé margföld í samanburði við hvað þekktist þegar
þorskstofninn var, samkvæmt gögnum Hafrannsóknastofnunarinnar, miklu stærri en
nú.  Þetta er jafnvel að gerast hjá
línuútgerðum sem reyna eftir fremsta megni að veiða aðrar tegundir. 



Reynsla langflestra innan smábátaútgerðarinnar
– og fjölmargra utan hennar raða – er að staða þorskstofnsins sé óvanalega góð
og vel hafi tekist til við uppbyggingu hans.



 

Ýsa – smábátaeigendur greina smávægilega minnkun á
ýsu, sem skýrir tillögu LS um að veiðiheimildir verði lækkaðar um 14%.  Stjórn LS álítur að veiðar dragnótabáta
og togara við Suðurland séu varhugaverðar og beinir því til yðar að færa þær
fjær landi.

 

Ufsi – ekkert lát er á mikilli ufsagengd.  Það kemur því verulega á óvart að Hafró
skuli leggja til 50% minnkun.  
Stjórn LS fullyrðir að engin innistæða sé fyrir slíkum niðurskurði og
leggur til óbreyttan ufsaafla.

 

Steinbítur – góð veiði hefur verið á
steinbít undanfarin ár. 
Smábátaeigendur merkja ekki minnkandi afla á hverja einingu.  Þá er eftirtektarvert að steinbítur
veiðist nú víðar heldur en undanfarin ár. 

 

Langa og keila – trillukarlar merkja ekki
aukna útbreiðslu þessara tegunda, né heldur að þær veiðist í minna mæli.   Stjórn LS leggur til að
heildarafli í löngu og keilu verði óbreyttur milli ára.“

 

 

 

 

,