Rúm 500 leyfi og yfir 400 byrjaðir strandveiðar

Fjöldi strandveiðileyfa er kominn í 506 og 407 bátar eru
byrjaðir veiðar.   Flest eru
leyfin á svæði A – 184, nokkru færri á svæði D – 142, á svæði C hafa 98
bátar leyfi til strandveiða og fæst eru leyfin á svæði B – 82.

Nýuppfærðar tölur má sjá hér að neðan.

Eins og fram hefur komið er búið að loka svæði A til
mánaðarmóta.  Nokkrir
strandveiðimenn á því svæði hafa haft samband við skrifstofu LS og bent á að
fyrsti leyfilegur róðradagur í ágúst sé um verzlunarmannahelgina, sunnudagurinn
2. ágúst.  Þeir hvetja til að menn
tali sig saman og sammælist um að hefja ekki róðra fyrr en þriðjudaginn 4.
ágúst.  Þann dag séu flestir komnir
til vinnu aftur, eftir að hafa verið í fríi um verzlunamannahelgina.

 

Picture 7.png

 

Tölur unnar úr upplýsingum frá Fiskistofu