Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að þriðjudagurinn
4. ágúst verði fyrsti dagur strandveiða í ágúst. Ráðherra hefur undirritað reglugerð þessu til staðfestingar.
Í
tilkynningu á heimasíðu ráðuneytisins af þessu tilefni segir eftirfarandi:
„Ástæðan fyrir þessu er að
verslunarmannahelgin fellur til í byrjun ágúst og landsmenn, fjölskyldufólk og
aðrir vilja vera í sumarleyfi.
Jafnframt liggur fyrir að fiskmarkaðir og flestar fiskvinnslur verða
lokaðar, þannig að gæði hráefnisins eru í húfi. Fram hefur komið að Landssamband smábátaeigenda styður þessa
ráðstöfun.“
Á
morgun 30. júlí er síðasti dagur strandveiða í mánuðinum. Fyrir daginn í dag voru helstu tölur í
veiðikerfinu þessar: