Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið tekur þátt í menningarnótt

Í fyrsta skipti frá því stofnað var til Menningarnætur í Reykjavík árið 1996 mun ráðuneyti sjávarútvegs og landbúnaðar hafa opið hús fyrir almenning.

Eftirfarandi texta er að finna á vef ráðuneytisins:
„Menningarnótt verður haldin í miðborginni laugardaginn 22. ágúst. Þema hennar að þessu sinnni Húsin í bænum. Allmörg hús sem alla jafna eru ekki opin almenningi munu opna dyr sínar og taka á móti gestum hátíðarinnar.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið verður með opið hús á Menningarnótt. Ráðuneytið er til húsa að Skúlagötu 4 og verður húsið opið frá kl. 14.00 til kl. 18.00. Þá munu ráðherra og starfsfólk hans kynna starfsemi ráðuneytisins fræða gesti og og svara spurningum þeirra.
Reynir Jónasson harmónikkuleikari mun spila ljúfa tónlist og boðið verður upp á sælgæti og blöðrur fyrir börnin og íslenskt grænmeti og harðfisk fyrir alla. Kaffi á könnunni.
Allir velkomnir í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið á Menningarnótt.’

Sjávarútvegsnefnd leggur til breytingar á „Jöfnunarsjóðsfrumvarpi“