Útflutningur á ferskum þorskafurðum – verðhækkun skilar sér ekki til sjómanna


LS hefur skoðað
útflutning á ferskum þorskafurðum, flök og beinlausir bitar.   Fyrri helmingur þessa árs var
borin saman við sama tímabil í fyrra.   Í ár var útflutningurinn um 0-5-6 tonn að verðmæti 7,2
milljarðar sem er rúmum 0-7-2 tonnum meira en á fyrri helmingi ársins
2008.  

 

Mest var flutt út
til Bretlands, 7-6-2 tonn, til Frakklands 2-6-1 tonn og til Belgíu 0-3-1
tonn.  Til annarra landa náði
magnið ekki 300 tonnum.   Í
öllum löndunum er aukning milli ára, langmest í Frakklandi þar sem magnið tæplega
fjórfaldaðist milli ára.

Í tölum Hagstofu
Íslands kemur einnig fram að útflutningsverðið er nú að meðaltali 11% hærra en
í fyrra.  Þegar tekið er tillit til
gengislækkunar krónunnar er dæmið hins vegar í mínus og mikil verðlækkun í myntum
þessara landa eða á bilinu 20 – 23%.  

 

Þegar þessar
staðreyndir í útflutningi ferskra þorskafurða liggja fyrir, kemur á óvart að
meðalverð á þorski á fiskmörkuðunum var 16% lægra nú en í fyrra.  Fyrri helmingur ársins 2008 skilaði 255
kr meðalverði en í ár var verðið 214 kr/kg.