Viðvörun – Landsbankinn vill breytingar á lánum í stað frystingar


Smábátaeigendur
sem eru í viðskiptum hjá Landsbankanum hafa undanfarna daga fengið símtöl frá
honum þar sem boðið er upp á breytingar á erlendum lánum.

Samkvæmt
upplýsingum frá félagsmönnum felast þær í undirritun nýs lánasamnings þar sem
viðkomandi samþykkir að greiða 8% árlega af upphaflegum höfuðstól lánsins auk
verðbóta með vísitölu neysluverðs frá lántökudegi.  Einnig er vaxtaálag hækkað verulega eða úr 2,2% í 3,75% eins
og fram kemur í dæminu sem LS hefur undir höndum.

 

Landsbankinn
notar gamalgróna aðferð til að þrýsta á menn að samþykkja skilmálana, sagt er: „Flestir
eru búnir að samþykkja að fara þessa leið og því best að skrifa strax undir“!  Eftir því sem LS kemst næst er það ekki
rétt.    

Landssamband
smábátaeigenda varar félagsmenn við því að samþykkja breytta skilmála lána fyrr
en raunhæf leiðrétting lánsupphæðarinnar hefur átt sér stað.  Flestir eru með lánin í frystingu og
þau i skilum, en þar sem komið er að framlengingu frystingar er pressan mest.  LS hefur kvartað til stjórnvalda um að fyrirheit
þeirra um allt að tveggja ára frystingu lána án skilmálabreytinga sé ekki að
skila sér.   Sjá nánar

LS
hefur látið lánsskjölin í hendur sérfræðinga sem vinna nú að samanburði á
gildandi skilmálum og þeim sem nú eru í boði, kostir og gallar.  Á meðan sú skoðun stendur yfir eru þeir
sem hafa nýju skilmálana til skoðunar hvattir til að undirrita þá ekki.   Sérfræðingarnir skila niðurstöðu
sinni nk. mánudag og verður hún birt hér á síðunni.

 

Vinna
við kortlagningu á stöðu félagsmanna stendur nú yfir.  Með slíkt í höndum verður LS betur í stakk búið til að ná
fram alsherjarlausn í formi leiðréttingar lána.  Maður á mann aðferðin sem Landsbankinn vinnur nú eftir
hugnast LS ekki.

 

,