Útflutningsverðmæti grásleppuhrogna og kavíars eykst um 113% milli ára

Á
fyrri helmingi ársins nam útflutningsverðmæti saltaðra grásleppuhrogna og
grásleppukavíars 923 milljónum króna. 
Það er hvorki meira né minna en 113% aukning frá sama tíma í fyrra.   

Eins
og undanfarin ár keyptu Frakkar langmest af grásleppukavíar eða tæpan helming
af heildarmagninu, Þjóðverjar voru næstir í röðinni og Ítalir í þriðja sæti í
heildarmagni innkaupa.   Alls
voru flutt út 226 tonn á tímabilinu.

Hæsta
meðalverð fyrir grásleppukavíar fékkst á Bandaríkjamarkaði.  Heildarútflutningsverðmæt kavíars var
355 milljónir.

 

Svíar
og Danir keyptu mest af söltuðum grásleppuhrognum og Þjóðverjar voru skammt á
eftir.  Alls svaraði heildarmagnið
til 8-6-4 tunna á móti 7-1-4 tunna á sama tímabili 2008.

 

Þessar
fréttir eru sérlega ánægjulegar fyrir það að þrátt fyrir að veik króna hafi hjálpað
til við verðmætaaukningu náðist einnig hækkun á báðum vörunum í evrum og
dollar.

 

 

Tölulegar
upplýsingar:  Hagstofa Íslands

,

,

,