Aðalfundur Árborgar

Formaður
Árborgar, Þorvaldur Garðarsson Þorlákshöfn, hefur boðað til aðalfundar í
félaginu.  Fundurinn verður haldinn
í Rauða Húsinu á Eyrarbakka á morgun miðvikudag og hefst kl 20:00.

Auk
venjulegra aðalfundarstarfa verður rætt um þá eyðileggingu sem dragnótabátar hafa valdið með stöðugu skarki í fjörunum austan Þorlákshafnar.  Árborg varaði við opnun þessa svæðis
fyrir dragnótaveiðum og benti á hvaða afleiðingar þær hefðu.  Krafðist þess að svæðinu yrði lokað en
hefur ekki orðið ágengt. 

 

Formaður
og framkvæmdastjóri LS mæta á fundinn.