Aðalfundur Reykjaness – banna á botntrollsveiðar innan 12 sjómílna

  

Aðalfundur
Reykjaness var haldinn í Grindavík 25. september sl.   Fjölmenni var á fundinum, hátt í fimmtíu félagsmenn
mættir.  Fundurinn samþykkti alls
12 tillögur sem beint er til 25. aðalfundar LS.  Umræður um þær voru miklar og ítarlegar og skoðanir oft á
tíðum ólíkar.  Samstaða fundarmanna var þó góð og flestar tillögur samþykktar
með öllum greiddum atkvæðum.

 

Fundurinn
ítrekar fyrri samþykktir um lokun svæðis fyrir botntrolli vestur úr Sandgerði
og suður af Grindavík.  Reykjanes
vill banna veiðar með botntrolli innan 12 sjómílna, ennfremur að
gulldepluveiðar verði bannaðar þar sem hún sé mikilvæg fæða fyrir ufsa og
karfa.  Þá vill Reykjanes að
loðnuveiðar verði takmarkaðar vegna mikilvægis hennar sem fæðu.

Sandgerdi.jpg

Reykjanes
mótmælir öllum hugmyndum um afnám sjómannaafsláttar.  Skorað er á samgönguráðherra að breyta reglugerð um
útivistartíma báta þar sem einn maður er um borð.

 

Á
fundinum voru viðruð ýmis sjónarmið á strandveiðum.  Reykjanes vill að veiðitímabil strandveiða verði mismunandi,
skipt í 2 mánuði t.d. suðursvæði væri í maí og júní, einnig að bátar sem leigt
hafa frá sér kvóta fái ekki strandveiðileyfi.  Þá var samþykkt að óska eftir að LS standi fyrir nákvæmri úttekt
á því hverjir nýttu sér strandveiðar, voru það t.d. nýliðar, frístundabændur,
útgerðir smábáta með eða án kvóta.

 

Snarpar
umræður urðu um ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og ákvörðun um heildarafla.  Fundurinn mótmælir harðlega niðurskurði
á ýsu og skorar á sjávarútvegsráðherra að auka aflamark í henni nú þegar.

 

 

Stjórn
Reykjaness er þannig skipuð:

   Halldór
Ármannsson formaður

   Þorlákur
Halldórsson gjaldkeri

   Jón
Jóhannsson ritari

   Páll
Jóhann Pálsson meðstjórnandi

   Eyþór
Reynisson meðstjórnandi