Brýnar aðgerðir í sjávarútvegi


Jón Bjarnason sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra ávarpaði aðalfund Samtaka fiskvinnslustöðva 25. september
sl.

Í einum kafla ræðu sinnar vék ráðherrann að stefnuyfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar um sjávarútvegsmál. 
Samkvæmt henni væri honum falin nokkur brýn verkefni, þau helstu eru:

„Knýja á um frekari fullvinnslu afla
hérlendis með því m.a. að skoða hóflegt útflutningsálag á fisk og/eða að
óunninn afli verði settur á innlendan markað.

Takmarka framsal á aflaheimildum, auka
veiðiskyldu og endurskoða tilfærslur á heimildum milli ára.

Vernda grunnslóð. Kannaðir verði möguleikar
þess að veiðar afkastamikilla skipa á grunnslóð og inn á fjörðum verði
takmarkaðar frá því sem nú er með það að markmiði að treysta grunnslóðina sem
veiðislóð fyrir smærri báta og umhverfisvænni veiði.

Skipa ráðgefandi hópa útgerðarmanna og
sjómanna varðandi veiðiráðgjöf og nýtingu sjávarauðlinda og ástand í lífríki
sjávar.

Heimila frjálsar handfæraveiðar smábáta yfir
sumarmánuðina.“

 

Jón sagði meirihluta þessara verkefna vera
komin í gang og sagði síðan:

„Ég er að láta skoða sérstaklega mál er
tengjast verndun á grunnslóð í Skagafirði, línuívilnun og frekari þróun þess
kerfis, stjórnun skötuselsveiða og veiða á úthafsrækju og sérstök tæknileg atriði varðandi ýsuveiðar svo eitthvað sé nefnt.“    

Um strandveiðar sagði ráðherra eftirfarandi:

„Þær gengu mjög vel að mínu mati.  Nú verður farið yfir reynsluna af þeim
og síðan lagt fram nýtt frumvarp um þær á yfirstandandi þingi.  Mín skoðun er að menn verða að sætta sig
við að í fiskveiðistjórnunarkerfinu verði að vera pláss fyrir sem flesta.  Þess
vegna er þessi möguleiki sem strandveiðarnar gefa nauðsynlegur.  Standveiðarnar eru, hvað sem menn segja,
þáttur í því að þjóðin nái betur sátt um fiskveiðistjórnunarkerfið.“ sagði Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.


Sjá nánar:

http://www.sjavarutvegsraduneyti.is/radherra/raedur_JB//nr/9789