KRÓKUR – þorskur fari strax í 220 þús. tonn


Sjóræningjahúsið á Patreksfirði var vettvangur
aðalfundar KRÓKS, sem haldinn var 24. september sl.   Fjölmenni sótti fundinn og voru umræður líflegar þar
sem þær náðu yfir flest svið smábátaútgerðarinnar.

Formaður LS og framkvæmdastjóri ávörpuðu
fundinn. 


Örn fór m.a. yfir lánamál smábáta eftir hrun
bankanna og þá erfiðleika sem félagsmenn glíma við vegna mikilla skulda.  

Örn ræddi strandveiðar og fór yfir tölfræði
þeirra.   Hann sagði
sjávarútvegsráðherra hafa boðað frumvarp í byrjun þings þar sem gert væri ráð
fyrir áframhaldandi strandveiðum.

Grásleppuveiðar rúmuðust einnig í ávarpi Arnar, hann
sagði þær afar mikilvægar fyrir smábátaútgerðina og hefðu veiðarnar nú skilað met
aflaverðmæti – 0-5-1 milljónum.

Örn endaði innlegg sitt til fundarins með skoðunum
sínum á úthlutun fiskafla á fiskveiðiárinu 0-20-2009 og þeim vandamálum sem
fylgja vegna skerðingar á ýsukvóta.  Hann sagði
nauðsynlegt að sjávarútvegsráðherra þyrfti að koma að þessum málum ef forðast
ætti atvinnuleysi sjómanna og beitningafólks og enn meiri erfiðleika í útgerð
smábáta.  Hann greindi frá
tillögu LS um frjálsar línuveiðar til áramóta og hækkun á línuívilnun sem næði
til allra dagróðrabáta.  Næðu þær
fram gætu smábátaeigendur horft fram á bjartari tíma í útgerðinni. 

 

Arthur Bogason formaður Landssambands
smábátaeigenda fór yfir árangur Hafrannsóknastofnunarinnar í gegnum árin sem hann
kvað vera afar rýran hvað aukningu veiðiheimilda varðaði. 

Hann ræddi um Evrópusambandið og lýsti áhyggjum
sínum ef að inngöngu yrði. 

Formaður sagði strandveiðikerfið hafa hresst upp á
lífið í hinum dreifðu byggðum og lýsti eindregnum stuðningi við kerfið.

 

Fundurinn gerði góðan róm af því sem fram kom í
máli formanns og framkvæmdastjóra LS og var sammála um að krefjast aukinna
veiðiheimilda handa dagróðrabátum, sókn væri besta og eina vörnin í þessum
efnum sem öðrum. 

 

Bjarni Kristjánsson lagði fram tillögu um
grásleppuveiðar sem gengur út á að C svæði verði stækkað til suðurs, nái suður
að línu sem helmingar Breiðafjörð.  Tillagan var samþykkt
samhljóða.

Í ályktunartillögum fundarins kemur fram að Strandveiðifélagið
KRÓKUR leggur áherslu á að línuívilnun verði hækkuð og nái til allra
dagróðrabáta.  Verði 20% hjá þeim
sem beita í landi, 13,3% hjá trektabátum og 6,7% hjá vélabátum.  Krókur við að geymsluréttur verði
lækkaður í 20% og fylgi aflamarki. 

Fullkomin eining var á fundinum með að skora á Jón
Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að auka nú þegar
þorskveiðiheimildir í 220 þús. tonn.  

Auk þessa samþykkti fundurinn að leggja til að
skötuselur verði undanþeginn kvóta sem meðafli við grásleppuveiðar. 

Krókur lýsti yfir stuðningi við strandveiðar.

Fyrningarleið var aðalfundi Króks ekki að skapi og
var skoðun fundarmanna eindregin gegn henni.

 

Stjórn Strandveiðifélagsins Króks skipa:

Formaður: 
             Tryggvi
Ársælsson

Gjaldkeri:                Friðþjófur Jóhannsson

Ritari:                     Hafþór Jónsson

Varamenn í stjórn:           

                             Þór
Magnússon

                             Magnús
Jónsson

 IMG_1977.jpg

Frá fundinum í Sjóræningjahúsinu á Patró