Strandir vilja flytjast á veiðisvæði B – vöntun á ýsu stöðvar báta


Strandir
héldu aðalfund á Hólmavík 29. september sl.  Ágæt mæting var á fundinn og bar margt á góma.  Almenn ánægja var með
grásleppuvertíðina og var það samdóma álit manna að vertíðin hefði sjaldan eða
aldrei skilað öðrum eins verðmætum.

Strandveiðar

Í
umræðu um strandveiðarnar kom fram vilji til að breyta veiðisvæðum þannig að
austurhluti A-svæðis verði við Horn en ekki Skagabyggð.  Strandir mundu við það tilheyra svæði B
sem þeir vilja að nái að Tröllaskaga. 
Einkum var þar bent á veðurfarið, það væri svipað á

DSC1-2-0.jpg

 Ströndum og á
N-landi vestra, en ólíkt því sem væri í Breiðafirði og Vestfjörðum.

Veiðar að stöðvast

Á
fundinum komu fram miklar áhyggjur vegna afleiðinga af niðurskurði á
veiðiheimildum í ýsu og hækkun á geymslurétti milli ára.  Engan ýsukvóta væri hægt að fá, enginn vill láta frá sér ýsu. 

Til
að koma í veg fyrir að bátar stöðvist vegna vöntunar á ýsu sem meðafla við
þorskveiðar samþykkti fundurinn eftirfarandi:

Aðalfundur
Stranda hvetur Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að bregðast
strax við því ófremdarástandi sem upp er komið í ýsuveiðum.  Strandir skora á ráðherra að koma í veg
fyrir þessi vandamál með því að setja í reglugerð að ýsa veidd á línu fram til
næstu áramóta reiknist ekki til afla- eða krókaaflamarks hvers báts þar sem
viðmiðunin verði 30% af ýsuafla viðkomandi á sl. fiskveiðári.

DSC4-2-0.jpg

Í
greinargerð með ályktuninni kemur fram að í nokkra mánuði hefur ekki verið
hægt að fá leigðar veiðiheimildir í ýsu. 
Afleiðingar þess eru að fjöldi báta verður að stöðva veiðar á næstu
dögum án þess að vera komnir í kvótaþurrð í öðrum tegundum.  Við það minnkar framboð á línuveiddri
ýsu, verðmæti lækkar, auk þess sem sjómenn og beitningafólk missir atvinnuna.“.

 

,