Trillukarlar á Reykjanesi styrkja björgunarsveitir um hálfa milljón

Smábátafélagið Reykjanes ákvað á aðalfundi sínum nýverið að
styrkja björgunarsveitirnar fimm, sem eru á Reykjanesskaganum, um hálfa
milljón. 

Það þótti vel við hæfi að afhenda styrkina á landsæfingu
slysavarnafélaganna sem haldin var á Reykjanesskaganum 24. október sl.   Við það tækifæri ávarpaði Halldór
Ármannsson formaður Reykjaness viðstadda. 
Hann lét þess getið að þar sem fjárhagsleg staða félagsins væri góð
hefði verið ákveðið að styrkja gott málefni.  Slysavarnafélögin voru það fyrsta sem kom í hug manna og
tekjur félagsins á einu ári væri ígildi styrkupphæðarinnar.

Það kom í hlut Þorláks Halldórssonar gjaldkera Reykjaness að
afhenda formönnum félaganna styrkina. 

Björgunarsveitirnar þökkuðu höfðinglegt framlag og þann góða hug sem trillukarlar á Reykjanesi sýndu starfi þeirra. 
Styrkurinn væri óvænt framlag á erfiðum tímum sem mundi nýtast vel til
eflingu slysavarna og björgunarstarfa.

 

Á myndinni er formaður og gjaldkeri Reykjaness ásamt
formönnum Björgunarsveitar Suðurnesja, Sigurvonar í Sandgerði, Þorbjarnar í
Grindavík, Skyggni í Vogum og Ægi í Garði.   

Reykjanes 017.jpg

,

Trillukarlar og útvegsmenn á Snæfellsnesi boða til fundar