fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar í gær 12. nóvember var eftirfarandi tillaga
frá Kristjáni Andra Guðjónssyni samþykkt einróma:
„Bæjarstjórn
Ísafjarðarbæjar skorar á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að auka nú þegar
aflamark í þorski um 40 þúsund
tonn og ýsu um 10 þúsund tonn, enda séu fyrir því vistfræðileg rök. Það er álit sjómanna allt í kringum landið að auknar veiðar í þessum mæli skaði ekki umræddar tegundir.“
Tillaga
þessi er kærkomin og sérstaklega ánægjulegt að bæjarstjórnir séu farnar að álykta
í þessa veru og einhugur ríki um málefnið.