Þorskur – góðar fréttir úr haustrallinu


Haustralli Hafrannsóknastofnunarinnar lauk 28. október sl.   Niðurstöður þess hafa verið
birtar og er ekki annað að sjá en þorskurinn sé á beinu brautinni.   Heildarvísitalan mældist svipuð og í fyrra, sem eru hæstu
gildi frá upphafi haustrallsins 1996.

Meðalþyngdir 3, 4, 5 og 6 ára þorsks eru allar töluvert
hærri en í fyrra og yfir meðalþyngd tímabilisins 1996 – 2009 að 4 ára
þorski undanskildum sem er rétt undir henni.

 

Sjá nánar