Breytt eignarhald í sjávarútvegi í kjölfar hruns

Ríkisstjórnin hefur ákveðið, í framhaldi af minnisblaði sem Jón
Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnðarráðherra kynnti 22. september sl., að
mynda vinnuhóp sem ætlað er að fjalla um breytingar sem kunna að verða á
eignarhaldi í sjávarútvegi og landbúnaði í kjölfar bankahrunsins.

Fjallað er um málefnið á heimasíðu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.

Sjá nánar.