Árlegur samstarfsfundur á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar
um þorskrannsóknir fór fram 19. og 20. nóvember sl. Á fundinum komu saman 15 skipstjórnarmenn og útgerðaraðilar,
sem búa yfir sérþekkingu á sviði þorskveiða mismunandi útgerðarflokka allt í
kringum landið, og sérfræðingar Hafrannsóknastofnunarinnar.
Skipstjórarnir greindu Hafrómönnum m.a. frá gangi veiða og hvernig þeir meta stöðu þorskstofnsins og sérfræðingarnir miðluðu upplýsingum af vor- og haustralli
stofnunarinnar og úrvinnslu úr afladagbókum frá fyrstu mánuðum ársins.
Skipstjórnarmennirnir voru á einu máli um að þorskveiðar
hefðu gengið vel að undanförnu, meira af stærri þorski og aldrei auðveldara að
ná kvótanum. Víða væri þorskurinn í
miklu æti; síld, makríl, gulldeplu og kolmunna.
Fulltrúar Landssambands smábátaeigenda á fundinum voru:
Guðmundur Einarsson Bolungarvík
Högni Reynisson Akranesi
Páll Jóhann Pálsson Grindavík
,