Festi ehf komið í söluferli hjá Landsbankanum

Skiptastjóri þrotabús Festar ehf hefur falið
fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að sjá um sölu fyrirtækisins.   Á heimasíðu Landsbankans kemur fram að söluferlið sé opið
öllum og markmið sölunnar sé að hámarka verðmæti fyrirtækisins.

 

Söluferlinu verður skipt í tvö stig.  Á fyrra stiginu gefst kostur á að
leggja fram óskuldbindandi kauptilboð eigi síðar en 10. desember 2009.   Þá hefst síðara stigið sem
hæstbjóðendur taka þátt í sem lýkur með bindandi kauptilboðum 23. desember
2009.

 

Sjá nánar