Reglugerð ESB um ólöglegar veiðar – kynningarfundur


Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur boðað til opins
kynningarfundar vegna samkomulags Íslands og Evrópusambandsins sem varðar
reglugerð nr. 8-20-1005 um ólöglegar veiðar.

Fulltrúar frá ráðuneytinu, Fiskistofu og Matvælastofnun
kynna reglugerðina og það kerfi sem stjórnvöld hafa sett upp til að annast
útgáfu veiðivottorða.  Slík vottorð
þurfa frá og með næstu áramótum að fylgja öllum fiski og fiskafurðum sem flytja
á inn á markaði Evrópusambandsins.

Fundurinn verður haldinn föstudaginn 11. desember nk. að
Borgartúni 6 (4. hæð) og hefst kl 10:00.