Grásleppan komin í 2,3 milljarða


Útflutningsverðmæti grásleppuafurða – saltaðra hrogna og
kavíars var hærra en nokkru sinni á sl. ári.  Þegar mánuður var eftir af árinu höfðu verðmætin aukist um
920 milljónir miðað við allt árið 2008, sem var einnig mjög gott ár.   Fyrstu ellefu mánuðir síðasta árs
skiluðu um 2,3 milljörðum í útflutningsverðmæti sem er 107% aukning miðað við
sama tímabil 2008. 

Frakkar eru eins og fyrr lang stærstu kaupendur af
grásleppukavíar, næstir þeim voru Þjóðverjar sem í mörg fyrri ár hafa haldið
sig neðarlega á listanum.

2-2260-100.jpg


Af söltuðum hrognum var mest flutt út til Þýskalands, Svíar
komu þar skammt á eftir og Danir voru þriðju stærstu kaupendurnir.

 

 

Unnið upp úr gögnum frá Hagstofu Íslands