Treysta grunnslóðina sem veiðislóð fyrir smærri báta og umhverfisvænni veiði

15. þ.m. sendi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið frá sér
fréttatilkynningu undir fyrirsögninni                          „Verndun grunnslóðar“.

Þar er tilkynnt að Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
hafi ákveðið í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar að setja af
stað verkefni þar sem kannaðir verði kostir þess að veiðar afkastamikilla skipa
á grunnslóð og inn á fjörðum verði takmarkaðar frá því sem nú er.

Markmið verkefnisins „er að treysta grunnslóð sem veiðislóð
fyrir smærri báta og umhverfisvæna veiði. 
Í þessu felst að við veiðar og nýtingu verði gætt að verndun
sjávarbotnsins og beitt vistvænum veiðiaðferðum.“  eins og segir í fréttatilkynningunni.

 

Eins og fram kemur er vinna þessi í samræmi við stefnuyfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar og flokkast undir brýnar aðgerðir.   Þar segir í 4. tölulið:  

„Vernda grunnslóð. 
Kannaðir verði möguleikar þess að veiðar afkastamikilla skipa á grunnslóð
og inn á fjörðum verði takmarkaðar frá þvi sem nú er með það að markmiði að
treysta grunnslóðina sem veiðislóð fyrir smærri báta og umhverfisvænni veiði.“

 

Sjá fréttatilkynningu í heild