miðvikudaginn 24. febrúar efnir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið til málstofu
um veiðar og vinnslu á makríl. Málstofan
verður i Þingsal 5, „bíósal“ á Hótel Loftleiðum og hefst kl 14:00.
Meðal þeirra sem
flytja erindi á málþinginu er Unnsteinn Þráinsson smábátaeigandi á Höfn. Unnsteinn er einn af frumkvöðlum makrílveiða
með handfærum og mun þar miðla af reynslu sinni.