Reykjanes styður ályktun stjórnar LS um skötuselsfrumvarpið


Smábátafélagið Reykjanes hélt almennan félagsfund
þann 6. mars 2010.

Fjölmörg mál voru rædd, en mest þó skötuselsfrumvarp
sjávarútvegsráðherra, línuívilnun og strandveiðar.

Samþykkt var samhljóða á fundinum að lýsa yfir
stuðningi  við núverandi afstöðu
stjórnar LS varðandi skötuselsfrumvarp sjávarútvegsráðherra.

 

Mikil og þung umræða var um yfirvofandi stöðvun
fjölmargra útgerða vegna of litilla veiðiheimilda.  Samþykkt var að skora á sjávarútvegsráðherra að auka nú
þegar við aflaheimildir í flestum tegundum:  í þorski um 0-0-40 tonn, ýsu 0-0-15 tonn, ufsa 0-0-10 tonn,
karfa 0-0-5 tonn og skötusel um 0-0-1 tonn.

 

Einnig var samþykkt að fulltrúar frá Smábátafélaginu
Reykjanesi ræði við sjávarútvegsráðherra, um að heimiluð verði jöfn
skipti í þorskígildum talið, á ufsa úr krókaaflamarki í aðrar tegundir úr
aflamarki.

 

Formaður Reykjaness er Halldór Ármannsson