Breytingum á línuívilnun frestað um 3 mánuði

Skötuselsfrumvarpið hefur verið afgreitt úr sjávarútvegs- og
landbúnaðarnefnd Alþingis til 3. umræðu. 
Nokkrar breytingar eru lagðar til á frumvarpinu.  Meðal þeirra eru:

Ákvæði um breytingar á línuívilnun tekur gildi 1. júní nk. í
stað 1. mars sl.

Aðlögunartími til að fara með krókaaflahlutdeild niður fyrir
sett mörk er framlengdur um eitt ár, tekur gildi 1. september 2011.

Skötuselslína er felld brott.

Skötuselsákvæðið svokallaða tekur gildi 15. apríl nk. í stað
15. febrúar sl.

Lögð er til ný útfærsla á endurúthlutun karfa í gullkarfa og
djúpkarfa.

 

Það eru LS mikil vonbrigði að ekki var fallist á kröfu félagsins
um línuívilnun til allra dagróðrabáta. 
 Áfram verður haldið að þrýsta
á það mál enda enn frumvörp til meðferðar hjá Alþingi um breytingar á lögum um
stjórn fiskveiða.

 

Sjá nánar:

Frumvarpið eftir 2. umræðu

Framhaldsefndarálit meirihluta sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar

Breytingartillögur meirihluta sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar