Smábátar landa á Breiðdalsvík – 10 störf verða til

 

Krókaaflamarksbátarnir Ragnar og Guðmundur Sig frá
Hornafirði lönduðu rúmum 27 tonnum á Breiðdalsvík 12. mars sl.   Aflinn var að mestu
steinbítur.  Frá þessu er skýrt á
vefnum – austurglugginn.is – .

Landanir bátanna eru um helmingur alls afla sem landað var á
Breiðdalsvík á sl. ári.  Að sögn
Arnars Þórs Ragnarssonar skipstjóra á Ragnari verða landanir bátanna „mikil
lyftistöng fyrir plássið, sennilega vinna fyrir um 10 manns.“

 

Í samtali við LS sagði Arnar Þór það hafa verið ánægjulegt
hvað Breiðdælingar hefðu veitt löndun bátanna mikla athygli.  Bæjarbúar flyktust niður á bryggju til
að fagna viðburðinum, líkt og gert er þegar nýr togari kemur til heimahafnar.