Enn fjölgar á grásleppunni

Alls hafa nú 214 bátar hafið grásleppuveiðar.  Það er rúmum þriðjungi fleiri en á sama
tíma í fyrra.   Flest leyfin
eru á svæði E (Skagatá að Fonti) 88.  

 

Almennt bera grásleppukarlar sig illa þegar spurt er um veiðarnar.  Minni en í fyrra, treg veiði.  Flestir kenna veðrinu um en frá því
veiðarnar hófust fyrir um mánuði hefur tíðarfar verið með eindæmum erfitt.

 

Eins og fram hefur komið takmarkast hvert
grásleppuleyfi við 62 samfellda daga frá því lagt er.  Þeir bátar sem nú eru að veiðum eru búnir með rúma
fjögur þúsund daga af rúmlega þrettán þúsund sem þeim er heimilt að hafa net í
sjó, sem svarar til 32% veiðitímans.   

 

Skipting leyfa eftir veiðisvæðum 7. apríl

 

2010

2009

A

24

18

B

18

2

C

9

4

D

31

20

E

88

77

F

36

32

G

8

4

Samtals

214

157

,

Talnaefni  unnið upp úr gögnum frá Fiskistofu