LS vill breytingar á frumvarpi til laga um strandveiðar


Eins og fram hefur komið er
strandveiðifrumvarpið nú til umræðu á Alþingi.  Við frestun þinghalds 25. mars sl. stóð yfir 2. umræða um
málefnið.  Gera má ráð fyrir að
málið komist aftur á dagskrá á næstu dögum, eigi strandveiðar að hefjast 1. maí
nk. eins og frumvarpið gerir ráð fyrir.

 

Í umsögn LS til sjávarútvegs- og
landbúnaðarnefndar Alþingis 9. mars sl, er lýst ánægju með
strandveiðifrumvarpið.  Veiðarnar
hafi á sl. sumri gengið afar vel og haft jákvæð áhrif á hinar dreifðu byggðir.

 

Í umsögninni óskar LS eftir að breytingar verði
gerðar á frumvarpinu.  Sjávarútvegsnefnd
hefur enn ekki orðið við beiðni LS. 
Möguleiki er þó á að breytingar verði gerðar þegar frumvarpið verður
rætt í nefndinni milli annarrar og þriðju umræðu.

 

Frumvarpið gerir ráð fyrir að afli til
strandveiða verði dreginn frá heildarafla áður en úthlutað verður samkvæmt
hlutdeild.  LS gerir alvarlega
athugasemd við þessa tilhögun og leggur áherslu á að strandveiðar verðir áfram óháðar
veiðum skipa með veiðileyfi í atvinnuskyni.  Þannig hafi strandveiðar verið kynntar og verið framkvæmdar
á síðastliðnu ári og ekkert kalli á breytingar þar á.

Þá vill LS að strandveiðileyfi sé ekki bundið
til loka fiskveiðiársins, heldur geti aðilar valið sé tímabil.  T.d. að verði tímabilin fjögur (maí,
júní, júlí, ágúst) eigi menn kost á að leyfið gildi aðeins í maí og júní.

 

Sjá nánar:   Strandveiðar.pdf