Strandveiðar hefjast 10. maí – umsóknir


Samkvæmt reglugerð.pdf sem Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra undirritaði í
gær, 3. maí, verður heimilt að hefja strandveiðar 10. maí nk.  

Fiskistofa
tekur nú rafrænt á móti umsóknum um strandveiðileyfi.  Með því að blikka hér kemur upp eyðublað sem fylla þarf út
og senda.  Vakin er athygli á að
umsóknir verða afgreiddar í þeirri röð sem þær berast og hægt er að skoða stöðu
afgreiðslu nokkrum klukkustundum eftir að umsókn hefur verið send.

Afgreiðsla
leyfis getur tekið nokkra daga og taka þau ekki gildi fyrr en greitt hefur verið
fyrir þau.

 

Sjá
nánar um strandveiðar.