105 grásleppubátar hættir veiðum


Í gær var vertíðarlok
hjá 105 grásleppubátum.  Þeir hófu
veiðar 10. mars og voru því leyfilegir veiðidagar 62 liðnir.  

Fiskistofa
hefur nú úthlutað 299 grásleppuleyfum sem er aukning um 20 frá síðustu vertíð.   Í dag hafa 182 bátar leyfi til grásleppuveiða og eru margir þeirra
langt komnir með dagana.  

12 bátar eru
enn ekki byrjaðir en þeir munu allir stunda veiðar við innanverðan Breiðafjörð
þar sem upphafstími vertíðar er 20. maí.