Strandveiðar – útreikningar á þorskígildi


Töluvert hefur
verið um hringingar frá strandveiðimönnum þar sem spurt er um þann afla sem
megi koma með að landi í hverri veiðiferð. 

 

Reglugerð og
lög kveða á um 650 þorskígildi.

 

Veiði menn
eingöngu þorsk er hámarkið 774 kg af honum óslægðum.   Sé eingöngu um ufsa að ræða í veiðiferðinni er
hámarkið 9-5-1 kg af honum óslægðum.

 

Við útreikninga
til þorskígilda skal margfalda óslægðan afla með eftirfarandi stuðlum:

            Þorskur              0,84

            Ufsi                   0,41

            Ýsa                   0,64

            Steinbítur           0,64

            Karfi                  0,61