Fiskmarkaður við gömlu höfnina í Reykjavík

Til
langs tíma hefur það verið draumur margra að settur verði á fót fiskmarkaður við
gömlu höfnina í Reykjavík.  Að koma slíku í framkvæmd er þó meira en að
segja það.  Undanfarið hafa nokkrir einstaklingar unnið ötullega að málinu
og sl laugardag birtist eftirfarandi auglýsing í Fréttablaðinu undir fyrirsögninni:

 

„Fiskmarkaður
við gömlu höfnina í Reykjavík“

 

Þar
segir:

 

„Alla
laugardaga í sumar verður starfræktur fiskmarkaður fyrir almenning við gömlu höfnina
í Reykjavík.  Fyrirhugað er að bjóða upp á breitt úrval ferskra sjávarafurða. 
Sölubásar eru lausir til úthlutunar fyrir seljendur fiskafurða.

Fyrsti
söludagur verður 5. júní á Hátíð hafsins.

Áhugasamir
hafi samband við Ernu Kaaber í síma 1-71-820 eða sendi póst: erna@fishandchips.is“

 

Enn
eru sölubásar á lausu, eftir því sem best er vitað.  

 

Víða
um heim eru slíkir fiskmarkaðir starfræktir.  Svo tekið sé dæmi selja
fiskimenn á smábátum almenningi afla sinn í höfninni við Moon Bay í Kaliforníu,
vestan við San Francisco.  Víða í Asíu eru slíkir markaðir við lýði. 
Þá má geta þess að í Nuuk á Grænlandi er útimarkaður sem selur ekki aðeins
fisk.  Þar er einnig á boðstólum selkjöt og hvalkjöt.

 

Vonandi
tekst vel til með þetta framtak.  Íslendingar, sem og erlendir ferðamenn
hafa til margra ára spurst fyrir um hvar slíkan markað sé að fyrirfinna.

 

Myndin sýnir smábátasjómann á suðurströnd
Frakklands.

  Fish market France.png