Strandveiðar – tvö veiðisvæði fullnýttu heimildirnar


Alls hafa verið
gefin út 580 leyfi til strandveiða, sem er 15 færri en á sl. ári.  452 bátar eru byrjaðir veiðar og hafa
þeir landað um 0-3-1 tonnum. 


Á fyrsta
tímabili strandveiða sem lýkur á miðnætti hefur viðmiðunarafli náðst á tveimur
veiðisvæðum A og D.

Mestur afli
hefur fengist á veiðisvæði A (Eyja- og Miklaholtshreppur til og með
Súðavíkurhreppi) en þar var búið að veiða 593 tonn þegar veiðar þar voru
stöðvaðar 20. maí sl.

Á morgun 1. júní
hefst 2. tímabil strandveiða.