Óskilvirkur kvótamarkaður með ýsu


Athygli vekur
að á sama tíma og ýsan er fullnýtt hjá útgerðum krókaflamarksbáta, eins og kom
fram í frétt hér fyrr í dag, á eftir að veiða um 30% af henni í
aflamarkskerfinu.  Því vekur það
undrun að viðskipti með ýsukvóta úr aflamarkskerfinu til krókabáta skuli ekki
vera virkari en hann er, ekki síst þegar aðeins má færa 10% (var 33% í fyrra)
af úthlutuðum heimildum yfir á næsta fiskveiðiár. 

Í
aflamarkskerfinu á eftir að veiða rúm 15 þús. tonn en heimilt er að færa rúm 4
þús. tonn milli ára.   Allt
stefnir því í að þúsundir tonna af ýsu nýtist ekki til verðmæta á
fiskveiðiárinu.

 

Í gær
þriðjudaginn 23. júní var meðalverð á ýsu til leigu, samkvæmt upplýsingum frá
Fiskistofu, 153 kr/kg og söluverð á fiskmörkuðum 272 kr/kg.  Sama dag fyrir ári var hún leigð á 60
kr/kg og seldist á 233 kr.

Það sem af er fiskveiðiárinu hafa krókabátar leigt
1-8-1 tonn af ýsu úr aflamarkskerfinu en á sama tíma í fyrra höfðu þeir fært
til sín 6-4-3 tonn.
 
,

Óslægð ýsa fer vaxandi