Á vef Fiskistofu birtist fyrr í dag tilkynning um stöðvun strandveiða á svæðum A, B og C, en samanlagt ná þessi þrjú svæði frá Eyja- og Miklaholtshreppi norður og austur um til Djúpavogshrepps.
Svæðum A og B er lokað frá deginum í dag, 5. ágúst sem þýðir að strandveiðibátum á þessum svæðum var heimilt að róa þrjá daga í mánuðinum. Í tilkynningu Fiskistofu er það hins vegar orðað svo að þessum svæðum sé lokað „frá og með 9. ágúst’.
Svæði C er lokað frá og með þriðjudeginum 10. ágúst.
Hvenær svæði D verður lokað er ekki enn opinbert. Veiði á því svæði hefur verið afspyrnuléleg þá daga sem liðnir eru af ágústmánuði.
Strandveiðum lokið – Sædís frá Húsavík aflahæst