Heimsmet hjá Sirrý ÍS, – 9-7-1 tonn


Nýliðið fiskveiðiár verður áhöfn Sirrýjar ÍS
örugglega ógleymanlegt.  Þeir settu
glæsilegt heimsmet smábáta, heildarafli fiskveiðiársins 9-7-1 tonn og bættu
fyrra heimsmet um 222 tonn sem Guðmundur Einarsson ÍS átti og var frá
fiskveiðiárinu 6-20-2005. 

 

Aflann fékk Sirrý í 297 róðrum og var
meðaltalið því 5,8 tonn.  Mestur
varð aflinn í janúar 224 tonn, þar sem meðaltal á hvern bala var 235 kg.

 

Á Sirrý eru 3 í áhöfn, 2 á sjó og einn hvílir 2
daga í senn.  Við beitningu starfa
8 manns.  

Skipstjóri á Sirrý ÍS er Sigurgeir Steinar
Þórarinsson.

Þegar slegið var á þráðinn til Sigurgeirs og
honum óskað til hamingju með árangurinn var hann inntur eftir því hvað væri
honum efst í huga af miðunum á sl. fiskveiðiári.  Hann var skjótur til svars:  „Það er hversu óhemjumikið er af góðum þorski, hins vegar
hef ég smá áhyggjur af steinbítnum, við veiddum nánast eingöngu mjög stóran
steinbít, en urðum vart varir við smáan“, sagði Sigurgeir.  

 

Sigurgeir lagði áherslu á að svo miklum afla
væri ekki hægt að ná nema valinn maður væri í hverri stöðu og kom á framfæri
hrósi og þakklæti til áhafnar sinnar og beitningafólks.  

 

 

Með því að blikka Sirrý.pdf má sjá skiptingu aflans eftir mánuðum, dreifing róðra  og meðaltal hvers mánaðar.

 
,